um okkur
Um alto
alto er íslensk fjáröflunarlausn fyrir skóla, útskriftarhópa, íþróttalið og aðra skipulagða hópa. Hver þátttakandi fær sína eigin söfnunarsíðu þar sem vinir og fjölskylda panta vörur og greiða fyrir þær á netinu. alto sér um vörurnar og kemur þeim til hópsins þegar söfnun lýkur, og ágóðinn er greiddur út eftir afhendingu.
Fyrirtækið
alto er rekið af Palo Alto ehf., kt. 640926-0580. alto er seljandi varanna gagnvart kaupendum. Þátttakendur í söfnun, safnarar, fá ágóða greiddan frá alto fyrir hverja vöru sem er pöntuð hjá þeim. Í skilmálunum heitir ágóðinn umsýsluþóknun.
Hópar eru settir upp í samráði við alto. Það er engin sjálfvirk skráning hópa: við tölum við tengilið hópsins, förum yfir hvort alto henti og ákveðum fyrirkomulagið saman.
Fyrir hverja er alto?
alto er fyrir skipulagða hópa á Íslandi sem safna fyrir sameiginlegu markmiði:
- Bekkir og útskriftarhópar
- Nemendafélög og foreldrafélög
- Íþróttafélög, lið og flokkar
- Kórar og aðrir skipulagðir hópar
Hvernig söfnun gengur fyrir sig, skref fyrir skref, er lýst í yfirliti um fjáröflun með alto.
Greiðslur, afhending og ágóði
Kaupendur greiða með greiðslukorti í greiðslugátt Straums greiðslumiðlunar hf. Þeir fá staðfestingu í tölvupósti þegar pöntun er greidd og aftur þegar varan hefur verið afhent.
Ágóðinn er greiddur út í einu lagi eftir afhendingu, að loknum 14 daga biðtíma og þegar skilyrði fyrir útgreiðslu eru uppfyllt. Biðtíminn hefst þegar þátttakandi staðfestir afhendinguna. Kaupendur hafa 14 daga frá pósti um afhendinguna til að láta vita ef eitthvað vantar. Ef mál er óleyst bíður útgreiðslan þar til það er leyst.
Nánari ákvæði eru í viðskiptaskilmálum fyrir safnara, viðskiptaskilmálum fyrir kaupendur og persónuverndarstefnu.
Hafa samband
Hópar sem vilja skoða fjáröflun með alto geta sent fyrirspurn hér að neðan eða skrifað framkvæmdastjóranum, Benedikt Björgvinssyni, beint á bb@alto.is.
Aðrar fyrirspurnir: postur@alto.is.
alto in English
alto is an Icelandic fundraising service for schools, graduating classes, sports teams and other organised groups. Each participant gets a personal fundraising page; friends and family order everyday products on it and pay online. When the fundraising period ends, alto delivers the products to the group, sorted by participant, and each participant hands them out to the people who ordered.
Each participant earns a fixed amount per product ordered, shown in advance, and alto pays it to their bank account after delivery, once a 14-day waiting period has ended and the payout conditions are met. Payments are processed by Straumur greiðslumiðlun hf. alto is operated by Palo Alto ehf. and serves groups in Iceland. The service and its terms are in Icelandic.
alto fyrir hópinn
Viltu skoða fjáröflun með alto fyrir hópinn?
Sendu okkur upplýsingar um hópinn. Við förum yfir hvort alto henti ykkur og höfum samband.
Viltu frekar hafa samband beint?Benedikt BjörgvinssonFramkvæmdastjóri altobb@alto.is