fyrir hópa
Fjáröflun fyrir hópa: hver og einn safnar, alto sér um vörurnar
Með alto fær hver þátttakandi sína eigin söfnunarsíðu. Vinir og fjölskylda panta og greiða á netinu, og þegar söfnun lýkur kemur alto vörunum til hópsins. Hér er farið yfir hvernig þetta virkar og hvað hópurinn þarf að gera.
Hvað er alto?
alto er íslensk fjáröflunarlausn fyrir skóla, útskriftarhópa, íþróttalið og aðra skipulagða hópa. Hver þátttakandi fær sína eigin söfnunarsíðu þar sem vinir og fjölskylda panta vörur og greiða fyrir þær á netinu. alto sér um vörurnar og kemur þeim til hópsins þegar söfnun lýkur, og ágóðinn er greiddur út eftir afhendingu.
alto hentar hópum sem safna fyrir sameiginlegu markmiði, til dæmis útskriftarferð, keppnisferð eða búnaði, og vilja að hver og einn geti safnað fyrir sig. alto er gert fyrir hópa eins og:
- Bekkir og útskriftarhópar
- Nemendafélög og foreldrafélög
- Íþróttafélög, lið og flokkar
- Kórar og aðrir skipulagðir hópar
Svona gengur söfnun fyrir sig
Frá fyrsta símtali að útgreiðslu ágóða eru skrefin fimm.
Hópurinn er skráður
Tengiliður hópsins hefur samband við alto. Saman ákveðum við söfnunartímabil, afhendingarstað og vörulista hópsins. Þá fær hópurinn sinn hópkóða.
Þátttakendur stofna sína söfnun
Hver þátttakandi skráir sig með hópkóðanum, velur vörur af lista hópsins og fær sinn eigin söfnunarhlekk. Fyrir þátttakendur undir 18 ára stofnar forráðamaður söfnunina.
Fólk pantar og greiðir á netinu
Þátttakendur deila hlekknum með vinum og fjölskyldu. Kaupendur panta á söfnunarsíðunni og greiða með korti í greiðslugátt Straums. Enginn í hópnum þarf að taka við peningum.
alto sér um vörurnar
Þegar söfnun lýkur pantar alto vörurnar, flokkar þær eftir þátttakendum og kemur þeim á afhendingarstað hópsins, til dæmis í skólann eða íþróttahúsið.
Afhending og ágóði
Þátttakendur sækja sínar vörur og koma þeim til kaupenda. Ágóðinn er greiddur inn á bankareikning þátttakandans að loknum 14 daga biðtíma, þegar skilyrði fyrir útgreiðslu eru uppfyllt.
Hver gerir hvað?
alto tekur að sér það sem venjulega lendir á gjaldkera eða foreldrum. Hópurinn sér um fólkið og afhendinguna.
alto sér um
- Söfnunarsíðu fyrir hvern þátttakanda
- Pantanir og greiðslur kaupenda á netinu
- Kvittanir og staðfestingar til kaupenda
- Innkaup á vörunum hjá birgjum
- Flokkun eftir þátttakendum og flutning á afhendingarstað
- Uppgjör og útgreiðslu ágóða
Hópurinn sér um
- Tengilið sem heldur utan um hópinn
- Að kynna söfnunina fyrir þátttakendum og deila hópkóðanum
- Að þátttakendur deili sínum hlekk
- Að sækja vörurnar og koma þeim til kaupenda
Greiðslur og ágóði
Kaupendur greiða með greiðslukorti í greiðslugátt Straums greiðslumiðlunar hf. Hópurinn kaupir engar vörur fyrir fram og þarf ekki að liggja með lager.
Ágóðinn er föst upphæð fyrir hverja vöru sem er pöntuð. Upphæðin sést fyrir hverja vöru áður en söfnun hefst, svo þátttakendur vita hvað hver pöntun skilar.
Ágóðinn er greiddur út í einu lagi eftir afhendingu, að loknum 14 daga biðtíma og þegar skilyrði fyrir útgreiðslu eru uppfyllt. Biðtíminn hefst þegar þátttakandi staðfestir afhendinguna. Kaupendur hafa 14 daga frá pósti um afhendinguna til að láta vita ef eitthvað vantar. Ef mál er óleyst bíður útgreiðslan þar til það er leyst.
Ágóðinn er greiddur hverjum þátttakanda, eða forráðamanni hans, en ekki í einn sameiginlegan sjóð. Nánar er fjallað um þetta í viðskiptaskilmálum fyrir safnara.
Hvaða vörur eru í boði?
Vörurnar eru heimilisvörur og matvörur sem flest heimili nota hvort sem er, til dæmis klósettpappír og eldhúsrúllur. Hver hópur fær sinn eigin samþykkta vörulista og hver þátttakandi velur hvaða vörur af honum hann býður upp á.
Vöruúrvalið ræðst af samningum alto við birgja og getur breyst. Dæmi um vörur eru á forsíðunni.
Hvað þarf að ákveða áður en söfnun hefst?
Söfnunin gengur betur ef þetta liggur fyrir áður en þátttakendur fá hópkóðann:
- Markmiðið og hvenær söfnun fer fram. Söfnunartímabil er alla jafna um tvær vikur.
- Hver er tengiliður hópsins við alto.
- Hvar vörurnar eru afhentar og hver tekur á móti þeim.
- Hvort ágóðinn á að renna í sameiginlegan sjóð. Hann er greiddur hverjum þátttakanda, svo hópurinn þarf að ákveða það sjálfur.
- Hverjir eru yngri en 18 ára. Fyrir þá stofnar forráðamaður söfnunina.
Spurningar og svör
Hvað þarf til að hefja fjáröflun með alto?
Hóp sem safnar fyrir sameiginlegu markmiði og einn tengilið. Sendið okkur fyrirspurn hér að neðan. Við förum yfir hvort alto henti ykkur, ákveðum með ykkur tímabil, afhendingarstað og vörulista, og hópurinn fær hópkóða.
Hver sér um pantanir og greiðslur?
Kaupendur panta á söfnunarsíðu þátttakandans og greiða með korti í greiðslugátt Straums. alto er seljandi varanna gagnvart kaupanda og sendir staðfestingu í tölvupósti. Hópurinn tekur ekki við greiðslum.
Hvenær fá þátttakendur vörurnar?
Eftir að söfnunartímabili lýkur. alto lætur vita hvar og hvenær vörurnar eru sóttar, og þær koma flokkaðar eftir þátttakendum.
Hver kemur vörunum til kaupenda?
Þátttakandinn sjálfur, í samráði við kaupendur og eigi síðar en 7 dögum eftir að hann sækir vörurnar. Hann merkir pantanir afhentar í stjórnborðinu sínu og kaupandinn fær staðfestingu í tölvupósti.
Hvenær er ágóðinn greiddur út?
Ágóðinn er greiddur út í einu lagi eftir afhendingu, að loknum 14 daga biðtíma og þegar skilyrði fyrir útgreiðslu eru uppfyllt. Biðtíminn hefst þegar þátttakandi staðfestir afhendinguna. Kaupendur hafa 14 daga frá pósti um afhendinguna til að láta vita ef eitthvað vantar. Ef mál er óleyst bíður útgreiðslan þar til það er leyst.
Hvernig er fylgst með sölunni?
Hver þátttakandi sér sínar pantanir og sinn ágóða í stjórnborðinu. Tengiliður hópsins getur fengið aðgang að yfirliti yfir alla söfnunina: fjölda þátttakenda, pantanir, sölu og ágóða, skipt eftir undirhópum og vörum.
Hversu mikil vinna fylgir söfnuninni?
Mesta vinnan felst í að deila hlekknum og afhenda vörurnar í lokin. Enginn þarf að halda utan um pantanir í skjali, rukka fólk eða geyma vörur á meðan söfnun stendur. Afhendinguna þarf hins vegar að skipuleggja.
alto fyrir hópinn
Viltu skoða fjáröflun með alto fyrir hópinn?
Sendu okkur upplýsingar um hópinn. Við förum yfir hvort alto henti ykkur og höfum samband.
Viltu frekar hafa samband beint?Benedikt BjörgvinssonFramkvæmdastjóri altobb@alto.is