Viðskiptaskilmálar fyrir kaupendur
Þessir skilmálar gilda um kaup á vörum í gegnum alto. Kaupandi samþykkir þá áður en greitt er fyrir pöntun.
Palo Alto ehf., kt. 640926-0580 — rekstraraðili alto.
1. Almennt
Viðskiptaskilmálar þessir gilda um kaup á vörum á vefsíðunni www.alto.is sem er í eigu og rekin af Palo Alto ehf., kt. 640926-0580 („alto“ eða „félagið“). Athugasemdir skulu sendar á netfang félagsins.
Vefsíðan www.alto.is er milligönguaðili fyrir fjáröflun. Nánar tiltekið geta hópar og einstaklingar, sem vilja fara í fjáröflun fyrir einstök verkefni, stofnað svæði á vefsíðunni og boðið þar til sölu vörur. Félagið telst vera seljandi vara á vefsíðunni gagnvart kaupanda. Safnari fær umsýsluþóknun greidda frá alto. Í þeim tilvikum sem safnari hefur ekki náð 18 ára aldri hefur forráðamaður viðkomandi tekið að sér að stofna til og bera ábyrgð á söfnun fyrir viðkomandi barn.
Sé kaupandi neytandi í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003, laga um þjónustukaup nr. 42/2000 eða laga um neytendasamninga nr. 16/2016, og séu þau lög hagstæðari fyrir kaupanda en skilmálar þessir, gilda ákvæði laganna framar ósamrýmanlegum ákvæðum skilmálanna. Lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 gilda til fyllingar skilmálum þessum eftir því sem við á.
Með því að leggja inn pöntun fyrir vörum á vefsíðunni telst kaupandi hafa samþykkt skilmála þessa.
2. Skilgreiningar
Í skilmálum þessum skulu eftirtalin hugtök hafa eftirfarandi merkingu:
Hið selda: Vörur sem kaupandi hefur keypt og greitt fyrir í gegnum vefsíðuna.
Hópur: Hópur fólks sem tilheyrir tilteknum félagsskap og hefur ákveðið að standa að og bjóða upp á fjáröflun fyrir þá einstaklinga sem tilheyra hópnum.
Netfang félagsins: alto@alto.is
Kaupandi: Sá sem leggur inn pöntun fyrir vörum á vefsíðunni.
Safnarar: Einstaklingar sem stofna söfnun á vefsíðunni í tengslum við fjáröflun. Í þeim tilvikum sem viðkomandi hefur ekki náð 18 ára aldri er á ábyrgð forráðamanns að stofna til söfnunarinnar í þágu viðkomandi barns og telst forráðamaðurinn þá safnari samkvæmt skilmálum þessum. Ýmist er vísað til safnara í fleirtölu eða eintölu, eftir því sem við á.
Söfnunartímabil: Það tímabil sem fjáröflun varir, alla jafna um það bil tvær vikur.
Vefsíðan: www.alto.is
3. Vöruframboð og eiginleikar vöru
Vöruframboð á vefsíðunni ræðst af samningum alto við birgja.
Upplýsingar um eiginleika vara sem boðnar eru til sölu á vefsíðunni eru veittar samkvæmt upplýsingum frá birgjum og eftir bestu vitund alto. Allar upplýsingar á vefsíðunni um vörur eru birtar með fyrirvara um birgðastöðu og birtingar- og innsláttarvillur í texta, verði og myndum.
4. Samningur um vörukaup og greiðslur
Þegar kaupandi hefur staðfest kaup á hinu selda á vefsíðunni og greitt fyrir, birtist staðfesting þess efnis á vefsíðunni auk þess sem kaupandi fær sendan tölvupóst á uppgefið netfang til staðfestingar á viðskiptunum. Telst þá samningur hafa komist á um viðskiptin og þau verða skuldbindandi fyrir kaupanda. Kaupandi skal yfirfara staðfestinguna og ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við pöntunina.
Í viðskiptum með vörur á vefsíðunni skal gilda það verð sem var í gildi þegar kaupin voru gerð og skal það koma fram í staðfestingunni. Allt verð á vefsíðunni er gefið upp með virðisaukaskatti og getur breyst án sérstaks fyrirvara.
Kaupandi greiðir fyrir viðskiptin með skuldfærslu á greiðslukorti eða með öðrum greiðslumáta, eftir því hvað boðið er upp á á vefsíðunni hverju sinni. Allar greiðslur eru framkvæmdar í greiðslugátt Straums greiðslumiðlunar hf., sjá stefnu og viðskiptaskilmála á vefsíðunni www.straumur.is/stefnur-og-skilmalar. Synji útgefandi greiðslukorts að heimila skuldfærslu, og þar með greiðslu til alto vegna viðskiptanna, áskilur félagið sér rétt til að falla einhliða frá viðskiptunum án nokkurrar ábyrgðar.
5. Afhending
Upplýsingar um söfnunartímabil er að finna á vefsíðunni. Afhending á hinu selda fer fram eftir að söfnunartímabili lýkur. Með skilmálum þessum er kaupandi upplýstur um að safnarar hafa skuldbundið sig gagnvart alto til þess að afhenda hið selda til kaupanda í samráði við hann. Afhending á hinu selda kann að taka nokkra daga eftir að söfnun lýkur.
Þegar safnari hefur afhent hið selda merkir hann það afhent á mælaborði sem hann hefur aðgang að á vefsíðunni. Kaupandi fær þá staðfestingu á því í tölvupósti að hið selda hafi verið afhent honum. Berist kaupanda slík staðfesting án þess að hið selda hafi raunverulega verið afhent skal hann hafa samband við alto án tafar með tölvupósti á netfang félagsins. Að sama skapi skal kaupandi upplýsa alto án tafar með tölvupósti á netfang félagsins ef hið selda berst ekki innan 10 daga frá því að söfnunartímabili lauk. Verði ágreiningur milli kaupanda og safnara um hvort hið selda hafi verið afhent áskilur félagið sér rétt til að halda eftir greiðslum til safnara þar til leyst hefur verið úr slíkum ágreiningi.
Með skilmálum þessum er kaupandi upplýstur um að alto er háð birgjum um afhendingu á vörum. Félagið áskilur sér rétt til að afgreiða ekki viðskipti kaupanda að fullu ef keypt vara reynist uppseld eða fæst ekki afhent hjá birgi af öðrum sökum. Þá áskilur alto sér rétt til að afgreiða hið selda ekki ef félagið telur að viðskiptin séu afleiðing af misnotkun á vefsíðunni, svo sem ef kaupandi hefur veitt rangar upplýsingar við greiðslu eða ef félagið grunar að um sé að ræða tilraun til svika. Komi til þessa skal félagið upplýsa kaupanda um það og um leið hvaða úrræði standi honum til boða, t.a.m. um möguleika á að fá aðra vöru afhenta í staðinn ef vara er uppseld eða að fá endurgreitt.
6. Skilaréttur kaupanda og réttindi vegna galla á vöru
Eftir að kaupandi hefur fengið hið selda afhent skal hann kanna hvort allar vörur sem hann keypti hafi verið afhentar. Verði hann var við að afhending hafi ekki verið með réttum hætti eða að vara sé gölluð, skal hann tilkynna safnara og alto um það án ástæðulauss dráttar. Tilkynning til alto skal berast á netfang félagsins. Um frest kaupanda til tilkynningar um galla og/eða vöntun á vörum og úrræði vegna þess fer eftir ákvæðum laga nr. 48/2003 um neytendakaup ef kaupandi er neytandi en að öðrum kosti samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000. Félagið áskilur sér rétt til að sannreyna hvort varan sé gölluð og við mat á galla skal miðað við það tímamark sem hún var afhent, sjá nánar 18. gr. laga nr. 48/2003 um neytendakaup. Félaginu er heimilt að bæta úr galla eða afhenda aðra vöru. Félagið tekur ekki sérstaka ábyrgð á vörum sem keyptar eru á vefsíðunni.
Sé kaupandi neytandi hefur hann fjórtán daga frest til þess að falla frá samningi um viðskipti nema undanþáguákvæði 18. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016 eigi við. Upphaf frestsins skal miða við þann dag sem kaupandi fékk hið selda afhent. Tilkynning um vöruskil skal berast alto með tölvupósti á netfang félagsins. Kaupandi skal bera beinan kostnað af vöruskilum og skal bera ábyrgð á rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð hennar.
7. Veiting og notkun upplýsinga
Kaupanda er óheimilt að veita rangar upplýsingar um sig eða rangar greiðsluupplýsingar eða nota vefsíðuna með einhverjum sviksamlegum hætti öðrum. Félagið áskilur sér allan rétt verði það vart við slíka háttsemi á vefsíðunni, m.a. til að afhenda viðeigandi yfirvöldum slíkar upplýsingar til rannsóknar.
Upplýsingum og gögnum á vefsíðunni er safnað af félaginu, sjá persónuverndarstefnu alto.
8. Réttur til skaðabóta
Kaupandi á ekki rétt til skaðabóta úr hendi alto vegna vanefnda, sbr. þó ákvæði laga nr. 48/2003 um rétt kaupanda til úrræða vegna galla.
Hvað sem framangreindu líður á kaupandi þó ekki rétt til skaðabóta úr hendi alto þegar vanefndir orsakast af óviðráðanlegum eða ófyrirséðum atvikum sem ekki eru til staðar við samningsgerð, svo sem vinnudeilum, styrjöldum, uppreisnum, náttúruhamförum, óveðri, aðgerðum stjórnvalda, breytingum stjórnvalda á lögum og reglugerðum, viðskiptabönnum, hafnbönnum, almennum samgönguhindrunum, orkuskorti og sambærilegum óviðráðanlegum atvikum.
9. Réttur til breytinga á skilmálum
alto áskilur sér allan rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara og birta á vefsíðunni. Mun þá hin uppfærða og breytta útgáfa gilda um viðskipti sem stofnað er til eftir birtingu.
10. Úrlausn ágreiningsmála
alto mun leggja sig fram um að leysa úr hvers kyns kvörtunum í samstarfi og sátt við viðskiptavini sína, birgja og aðra þjónustuaðila. Komi upp ágreiningur sem ekki tekst að ljúka með samkomulagi er, eftir atvikum, hægt að óska eftir áliti kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (Borgartúni 29, Reykjavík, kvth@kvth.is) eða bera ágreininginn undir Héraðsdóm Reykjaness.
Skilmálar þessir gilda frá og með 1. október 2026
Útgáfa kaupendur-2026-10-02 · uppfært október 2026.