Viðskiptaskilmálar fyrir safnara

Þessir skilmálar gilda um söfnun safnara á alto. Safnari samþykkir þá þegar söfnun er stofnuð.

Palo Alto ehf., kt. 640926-0580 — rekstraraðili alto.

1. Almennt

Viðskiptaskilmálar þessir gilda um fjáröflun safnara á vefsíðunni www.alto.is sem er í eigu og rekin af Palo Alto ehf., kt. 640926-0580 („alto“ eða „félagið“). Athugasemdir skulu sendar á netfang félagsins.

Vefsíðan www.alto.is er milligönguaðili fyrir fjáröflun. Nánar tiltekið geta hópar og einstaklingar, sem vilja fara í fjáröflun fyrir einstök verkefni, stofnað svæði á vefsíðunni og boðið þar til sölu vörur. Félagið telst vera seljandi vara á vefsíðunni gagnvart kaupanda. Safnari fær umsýsluþóknun greidda frá alto. Í þeim tilvikum sem safnari hefur ekki náð 18 ára aldri tekur forráðamaður að sér að stofna til og bera ábyrgð á söfnun fyrir viðkomandi barn.

Með skilmálum þessum er safnari upplýstur um að sé kaupandi neytandi í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003, laga um þjónustukaup nr. 42/2000 eða laga um neytendasamninga nr. 16/2016, og séu þau lög hagstæðari fyrir kaupanda en skilmálar þessir, gildi ákvæði laganna framar ósamrýmanlegum ákvæðum skilmálanna. Þá gilda lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 til fyllingar í viðskiptum við kaupendur.

Með því að stofna til söfnunar eða ganga til liðs við hóp sem hefur stofnað söfnun telst safnari hafa samþykkt skilmála þessa.

2. Skilgreiningar

Í skilmálum þessum skulu eftirtalin hugtök hafa eftirfarandi merkingu:

Hópur: Hópur fólks sem tilheyrir tilteknum félagsskap og hefur ákveðið að standa að og bjóða upp á fjáröflun fyrir þá einstaklinga sem tilheyra hópnum.

Netfang félagsins: alto@alto.is

Kaupandi: Sá sem leggur inn pöntun fyrir vörum á vefsíðunni. Ýmist er vísað til kaupanda í eintölu eða fleirtölu, eftir því sem við á.

Safnarar: Einstaklingar sem stofna söfnun á vefsíðunni í tengslum við fjáröflun. Í þeim tilvikum sem viðkomandi hefur ekki náð 18 ára aldri er á ábyrgð forráðamanns að stofna til söfnunarinnar í þágu viðkomandi barns og telst forráðamaðurinn þá safnari samkvæmt skilmálum þessum. Ýmist er vísað til safnara í eintölu eða fleirtölu, eftir því sem við á.

Söfnunartímabil: Það tímabil sem fjáröflun varir, alla jafna um það bil tvær vikur.

Vefsíðan: www.alto.is

3. Samningur um söfnun

Þegar safnari er orðinn 18 ára og stofnar söfnun telst samningur kominn á milli hans og alto þegar hann hefur samþykkt skilmála og lokið skráningarferli.

Safnari getur ekki stofnað söfnun hafi hann ekki náð 18 ára aldri. Við þær aðstæður þarf forráðamaður viðkomandi að stofna til söfnunarinnar og taka á sig allar skyldur og ábyrgð vegna hennar, m.a. á afhendingu á hinum seldu vörum og móttöku umsýsluþóknunar. Stofni forráðamaður söfnun telst hann safnari samkvæmt skilmálum þessum.

4. Vöruframboð og eiginleikar vöru

Vöruframboð á vefsíðunni ræðst af samningum alto við birgja.

Upplýsingar um eiginleika vara sem boðnar eru til kaups á vefsíðunni eru veittar samkvæmt upplýsingum frá birgjum og eftir bestu vitund alto. Allar upplýsingar á vefsíðunni um vörur eru birtar með fyrirvara um birgðastöðu og birtingar- og innsláttarvillur í texta, verði og myndum.

5. Skyldur safnara

Þegar söfnunartímabili lýkur skal safnari sækja vörurnar sem voru seldar í hans þágu í fjáröfluninni. Safnari fær tilkynningu frá félaginu um hvar og hvenær unnt er að nálgast vörurnar og skal sækja þær án ástæðulauss dráttar.

Safnari skuldbindur sig gagnvart félaginu til að afhenda vörurnar til kaupenda í samráði við þá svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en 7 dögum eftir að hann hefur sótt vörurnar.

Þegar safnari hefur afhent vörur til kaupanda skal hann merkja þær afhentar á mælaborði sem hann hefur aðgang að á vefsíðunni. Þegar safnari hefur afhent allar vörur skal hann staðfesta það á mælaborðinu. Kaupandi fær þá staðfestingu á því í tölvupósti að vörur hafi verið afhentar honum. Berist kaupanda slík staðfesting án þess að vörurnar hafi raunverulega verið afhentar skal hann hafa samband við félagið og safnara án tafar í samræmi við viðskiptaskilmála alto fyrir kaupendur. Verði ágreiningur milli kaupanda og safnara um hvort vörur hafi verið afhentar áskilur alto sér rétt til að halda eftir greiðslu umsýsluþóknunar til safnara þar til leyst hefur verið úr honum.

Safnari ber ábyrgð á að fylgjast með því hverjir kaupa af honum vörur. Safnari skal senda alto tilkynningu á netfang félagsins ef hann grunar að sviksamlegt athæfi eigi sér stað.

6. Skyldur félagsins

Félagið skuldbindur sig til að afhenda safnara hinar seldu vörur þegar söfnunartímabili lýkur. Félagið skal tilkynna safnara um það hvar og hvenær hægt er að sækja vörurnar.

Með skilmálum þessum er safnari upplýstur um að alto er háð birgjum um afhendingu á vörum og félagið áskilur sér rétt til að afgreiða ekki seldar vörur að fullu ef keypt vara reynist uppseld eða fæst ekki afhent hjá birgi af öðrum sökum. Þá áskilur alto sér rétt til að afgreiða vörurnar ekki ef félagið telur að viðskiptin séu afleiðing af misnotkun á vefsíðunni, svo sem ef kaupandi hefur veitt rangar upplýsingar við greiðslu eða ef félagið grunar að um sé að ræða tilraun til svika. Komi til þessa skal alto upplýsa safnara um það og um áhrif þessa.

Til að taka af allan vafa þá er safnari ekki starfsmaður félagsins. Safnarar ábyrgjast að gætt verði að öryggi við útkeyrslu og afhendingu varanna.

7. Skilaréttur kaupanda og réttur vegna galla

Samkvæmt viðskiptaskilmálum alto fyrir kaupendur skal kaupandi kanna það strax eftir afhendingu hvort allar vörur sem hann keypti hafi verið afhentar. Verði hann var við að afhending hafi ekki verið með réttum hætti eða að varan sé gölluð, skal hann tilkynna safnara og alto um það án ástæðulauss dráttar. Um frest kaupanda til tilkynningar um galla og/eða vöntun á vörum og úrræði vegna þess fer eftir ákvæðum laga nr. 48/2003 um neytendakaup ef kaupandi er neytandi en að öðrum kosti samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000. Félagið áskilur sér rétt til að sannreyna hvort varan sé gölluð og við mat á galla skal miðað við það tímamark sem hún var afhent, sjá nánar 18. gr. laga nr. 48/2003 um neytendakaup. Félaginu er heimilt að bæta úr galla eða afhenda aðra vöru. Félagið tekur ekki sérstaka ábyrgð á vörum sem keyptar eru á vefsíðunni. Félagið áskilur sér rétt til að halda eftir greiðslu umsýsluþóknunar til safnara vegna vara sem kaupandi hefur tilkynnt sem gallaðar eða sem hafa ekki fengist afhentar, þannig að félaginu sé haldið skaðlausu.

Sé kaupandi neytandi hefur hann fjórtán daga frest til þess að falla frá samningi um viðskipti nema undanþáguákvæði 18. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016 eigi við. Upphaf frestsins miðast við þann dag sem kaupandi fékk vörur sínar afhentar.

8. Greiðslur til safnara

Félagið greiðir safnara ágóða í formi umsýsluþóknunar fyrir hverja selda vöru. Upplýsingar um umsýsluþóknun safnara fyrir hverja einingu af hverri tegund vara koma fram á vefsíðunni.

Umsýsluþóknun til safnara er greidd í einu lagi 14 dögum eftir að hann hefur staðfest í mælaborði að hann hafi afhent allar vörurnar sem hann seldi í fjáröfluninni. Greiðslan fer fram með millifærslu frá alto inn á bankareikning safnara.

9. Veiting og notkun upplýsinga

Safnara er óheimilt að veita rangar upplýsingar um sig eða rangar greiðsluupplýsingar eða nota vefsíðuna með einhverjum sviksamlegum hætti öðrum. Félagið áskilur sér allan rétt verði það vart við slíka háttsemi á vefsíðunni, m.a. til að afhenda viðeigandi yfirvöldum slíkar upplýsingar til rannsóknar.

Upplýsingum og gögnum á vefsíðunni er safnað af alto, sjá persónuverndarstefnu alto.

Safnari fær afhentar tengiliðaupplýsingar um kaupendur til að hann geti afhent vörurnar. Um er að ræða persónuupplýsingar sem safnari er bundinn trúnaði um og honum er óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi en til að afhenda vörurnar. Safnari skuldbindur sig til að eyða öllum slíkum persónuupplýsingum um leið og gengið hefur verið frá greiðslu umsýsluþóknunar. Ákvæði þetta gildir sem vinnslusamningur í skilningi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

10. Réttur til skaðabóta

Safnari á ekki rétt til skaðabóta úr hendi alto ef vanefndir verða, svo sem ef vara fæst ekki afhent eða hún reynist gölluð með þeim afleiðingum að umsýsluþóknun til safnara lækkar.

11. Réttur til breytinga á skilmálum

Félagið áskilur sér allan rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara og birta á vefsíðunni. Mun þá hin uppfærða og breytta útgáfa gilda um viðskipti sem stofnað er til eftir birtingu.

12. Úrlausn ágreiningsmála

Félagið mun leggja sig fram um að leysa úr hvers kyns kvörtunum í samstarfi og sátt við viðskiptavini sína, birgja og aðra þjónustuaðila. Komi upp ágreiningur sem ekki tekst að ljúka með samkomulagi má bera hann undir Héraðsdóm Reykjaness.

Skilmálar þessir gilda frá og með 1. október 2026

Útgáfa safnarar-2026-10-02 · uppfært október 2026.

Aftur á forsíðu