fyrir íþróttafélög

Fjáröflun fyrir íþróttafélög og lið

Keppnisferðir, æfingaferðir, mót og búnaður. Með alto safnar hver iðkandi á sinni eigin síðu, fjölskylda og vinir panta á netinu og vörurnar koma í íþróttahúsið þegar söfnun lýkur.

Fyrir flokka, deildir og foreldraráð

Í íþróttafélögum heldur yfirleitt þjálfari, foreldraráð eða stjórn deildar utan um fjáröflun. alto hentar þegar heill flokkur eða lið safnar fyrir sama markmiði á sama tíma.

  • Yngri flokkar sem safna fyrir keppnisferð eða móti.
  • Lið og deildir sem safna fyrir æfingaferð.
  • Félög þar sem margir flokkar safna í sömu söfnun.

Svona fer söfnun fram hjá liði

  1. Þjálfari eða foreldraráð hefur samband

    Við ákveðum söfnunartímabil, vörulista og hvert vörurnar koma, til dæmis í íþróttahúsið. Liðið fær hópkóða.

  2. Iðkendur skrá sig

    Forráðamenn stofna söfnun fyrir iðkendur yngri en 18 ára. Hver iðkandi fær sinn hlekk til að deila.

  3. Fólk pantar

    Ættingjar og vinir panta og greiða á netinu. Þjálfari eða foreldraráð getur fylgst með stöðunni í yfirliti.

  4. Vörurnar koma í íþróttahúsið

    Flokkaðar eftir iðkendum. Hver og einn sækir sínar vörur og kemur þeim til kaupenda.

  5. Ágóðinn

    Greiddur út eftir afhendingu inn á bankareikning hvers safnara, að loknum 14 daga biðtíma og þegar skilyrði fyrir útgreiðslu eru uppfyllt.

Munurinn á hefðbundinni vörusölu

Margir þekkja að ganga í hús með klósettpappír, skrifa pantanir á blað og elta millifærslur. Með alto fara pantanir og greiðslur fram á netinu, hver iðkandi á sína síðu og enginn þarf að geyma vörur í bílskúrnum á meðan söfnun stendur.

  • Ekkert lagerhald fyrir fram.
  • Engar millifærslur eða reiðufé til að halda utan um.
  • Ágóði hvers iðkanda reiknaður sjálfkrafa.
  • Yfirlit fyrir þjálfara eða foreldraráð.

Spurningar frá íþróttafélögum

Hvernig getur íþróttalið safnað fyrir keppnisferð?

Mörg lið blanda saman nokkrum leiðum, til dæmis vörufjáröflun, vinnu á mótum og styrkjum frá fyrirtækjum. Vörufjáröflun með alto hentar þegar allir iðkendur safna á sama tíma og hver og einn á að fá sinn hlut. Aðrar leiðir eru bornar saman í fjáröflunarhugmyndum.

Geta margir flokkar safnað á sama tíma?

Já. Söfnuninni má skipta í undirhópa, til dæmis eftir flokkum, og tengiliður félagsins sér yfirlit yfir hvern hóp fyrir sig.

Hver tekur á móti vörunum?

Vörurnar koma á afhendingarstað sem er ákveðinn fyrir fram, oftast í íþróttahúsið. alto lætur vita hvar og hvenær þær eru sóttar.

Fær félagið eða iðkandinn ágóðann?

Ágóðinn er greiddur safnaranum, það er iðkandanum eða forráðamanni hans. Ef liðið safnar í sameiginlegan sjóð þarf að ákveða fyrir fram hvernig ágóðinn rennur þangað.

alto fyrir hópinn

Er liðið að fara að safna?

Sendu okkur upplýsingar um félagið eða flokkinn. Við förum yfir hvort alto henti ykkur og höfum samband.

Viltu frekar hafa samband beint?Benedikt BjörgvinssonFramkvæmdastjóri altobb@alto.is