fyrir skóla
Fjáröflun fyrir skóla og bekki
Bekkjarferð, skólaferðalag, ferð 10. bekkjar eða verkefni nemendafélagsins. Með alto safnar hver nemandi á sinni eigin síðu, fólk pantar og greiðir á netinu og vörurnar koma í skólann þegar söfnun lýkur.
Fyrir hverja í skólanum?
Söfnun í skóla fer oftast í gegnum einn tengilið: kennara, fulltrúa foreldrafélags, nemendaráð eða útskriftarnefnd. alto er sett upp þannig að sá tengiliður þurfi ekki að halda utan um pantanir og greiðslur.
- Bekkir og árgangar sem safna fyrir ferð.
- Nemendafélög og útskriftarnefndir í framhaldsskólum.
- Foreldrafélög sem skipuleggja söfnun með nemendum.
- Skólar þar sem margir bekkir safna í sömu söfnun.
Svona fer söfnun fram í skóla
Undirbúningur
Tengiliður hefur samband við alto. Við ákveðum tímabil, afhendingarstað í skólanum og vörulista. Skólinn fær hópkóða sem kennarar eða nemendaráð koma til nemenda.
Söfnunin
Nemendur skrá sig með kóðanum og deila sínum hlekk. Söfnunartímabil er alla jafna um tvær vikur. Fólk pantar og greiðir á netinu og nemandinn sér pantanirnar jafnóðum.
Vörurnar koma í skólann
Þegar söfnun lýkur kemur alto vörunum í skólann, flokkuðum eftir nemendum. Hver nemandi sækir sínar vörur og kemur þeim til kaupenda.
Uppgjör
Eftir afhendingu tekur við 14 daga biðtími. Að honum loknum, og þegar skilyrði fyrir útgreiðslu eru uppfyllt, greiðir alto ágóðann inn á bankareikning nemandans, eða forráðamanns ef nemandinn er yngri en 18 ára.
Margir bekkir í sömu söfnun
Í stærri skólum er hægt að skipta söfnuninni í undirhópa, til dæmis eftir bekkjum. Tengiliður skólans sér þá yfirlit yfir alla söfnunina og hvern undirhóp: fjölda þátttakenda, pantanir, sölu og ágóða.
Nemendur yngri en 18 ára
Í grunnskólum og á fyrstu árum framhaldsskóla eru flestir nemendur yngri en 18 ára. Þá stofnar forráðamaður söfnunina fyrir hönd barnsins og ber ábyrgð á henni, meðal annars á afhendingu varanna og móttöku ágóðans.
Það sem skólinn þarf ekki að gera
- Safna pöntunum á blöðum eða í skjali.
- Rukka foreldra og fylgjast með millifærslum.
- Kaupa vörur fyrir fram og geyma þær.
- Reikna út hvað hver nemandi safnaði.
Hvernig ferlið virkar í heild sinni er lýst í yfirliti um fjáröflun með alto.
Spurningar frá skólum
Þarf skólinn að kaupa vörur fyrir fram?
Nei. Kaupendur greiða fyrir sínar pantanir á netinu og alto pantar vörurnar eftir að söfnun lýkur.
Hvert fer ágóðinn?
Ágóðinn er greiddur hverjum nemanda, eða forráðamanni hans, inn á bankareikning. Ef bekkurinn safnar í sameiginlegan ferðasjóð er gott að ákveða fyrir fram hvernig ágóðinn rennur þangað.
Hvar eru vörurnar afhentar?
Á þeim stað sem skólinn og alto koma sér saman um, oftast í skólanum sjálfum. alto lætur vita hvar og hvenær vörurnar eru sóttar.
Hvernig fylgist tengiliður skólans með stöðunni?
Tengiliðurinn getur fengið aðgang að yfirliti yfir söfnunina með fjölda þátttakenda, pantana, sölu og ágóða, skipt eftir bekkjum eða öðrum undirhópum.
alto fyrir hópinn
Viltu skoða fjáröflun fyrir skólann?
Sendu okkur upplýsingar um skólann eða bekkinn. Við förum yfir hvort alto henti ykkur og höfum samband.
Viltu frekar hafa samband beint?Benedikt BjörgvinssonFramkvæmdastjóri altobb@alto.is