Persónuverndarstefna

Þessi stefna lýsir hvaða persónuupplýsingar alto skráir, í hvaða tilgangi og hverjir fá aðgang að þeim. Safnari staðfestir að hafa kynnt sér hana þegar söfnun er stofnuð og kaupandi áður en greitt er fyrir pöntun.

Palo Alto ehf., kt. 640926-0580 — rekstraraðili alto.

1. Almennt

Palo Alto ehf., kt. 640926-0580, Hæðarbyggð 11, Garðabæ („félagið“ eða „við“) er ábyrgðaraðili vegna vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er í persónuverndarstefnu þessari.

Við berum virðingu fyrir þér og persónuupplýsingum þínum. Af þeim sökum og í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga höfum við sett okkur persónuverndarstefnu þar sem við upplýsum um með hvaða hætti og hvers vegna við söfnum, notum og, eftir atvikum, varðveitum persónuupplýsingar um þig og hvaða rétt þú hefur í því sambandi.

2. Upplýsingar sem er safnað og tilgangur

Við söfnum ólíkum upplýsingum um viðskiptavini okkar eftir því hvort þeir hafi óskað eftir þjónustu okkar við framkvæmd fjáröflunar („safnarar“) eða hvort þeir hyggist kaupa vörur í fjáröflun í gegnum vefsíðuna okkar („kaupendur“).

Ef þú ert safnari söfnum við og höldum utan um upplýsingar sem tengjast viðskiptum þínum við okkur. Tilgangurinn með því er að halda utan um hvaða vörur þú hefur kosið að selja á vefsíðunni okkar, hverjir hafa keypt vörur í þinni fjáröflun, hvaða seldu vörur þú hefur sótt, hverjar þú hefur afhent og hvernig við getum greitt umsýsluþóknun til þín. Upplýsingar sem við söfnum í þessum tilgangi eru einkum:

  • Auðkennisupplýsingar, t.a.m. nafn og kennitala, til að tryggja örugga persónugreiningu
  • Tengiliðaupplýsingar, t.a.m. símanúmer og netfang
  • Fjárhagslegar upplýsingar, einkum sem snúa að heildarfjárhæð þeirra vara sem þú hefur selt og fjárhæðinni sem þú hefur safnað, auk upplýsinga um bankareikning svo við getum greitt þér umsýsluþóknun

Ef þú ert kaupandi söfnum við og höldum utan um upplýsingar sem tengjast kaupum á vörum í gegnum vefsíðuna okkar. Tilgangurinn með því er að skrá hjá okkur hvaða vörur þú hefur keypt, hvort þú hefur greitt fyrir þær og hvar skuli afhenda þær. Upplýsingar sem við söfnum í þessum tilgangi eru einkum:

  • Auðkennisupplýsingar, t.a.m. nafn
  • Tengiliðaupplýsingar, t.a.m. símanúmer, netfang og heimilisfang
  • Fjárhagslegar upplýsingar, þ.e.a.s. félagið fær staðfestingu á greiðslu frá Straumi greiðslumiðlun hf. en safnar ekki öðrum persónuupplýsingum, sjá nánar grein 4

3. Notkun persónuupplýsinga

Við notum þær persónuupplýsingar sem við söfnum einkum til að auðkenna safnara og kaupendur og hafa samband við þá, til að tryggja öryggi og áreiðanleika í viðskiptum við okkur og til að framkvæma þau viðskipti sem beðið er um.

Heimildir okkar til notkunar byggjast einkum á eftirfarandi:

  • Samþykki safnara og kaupenda, sbr. 1. tl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2018, sbr. viðskiptaskilmála félagsins og persónuverndarstefnu þessa
  • Til að koma samningi á og efna hann, sbr. 2. tl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2018
  • Til að uppfylla lagaskyldu, t.a.m. skv. lögum nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 3. tl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2018
  • Til að gæta lögmætra hagsmuna félagsins, t.a.m. hvað varðar svikavarnir, sbr. 6. tl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2018

4. Miðlun til þriðja aðila

Við miðlum upplýsingum um kaup kaupanda og tengiliðaupplýsingum til viðkomandi safnara. Safnarar þurfa að fá þær upplýsingar til að geta afhent vörurnar. Safnari er bundinn trúnaði um þær upplýsingar, sbr. viðskiptaskilmála alto sem gilda fyrir safnara.

Við kunnum að miðla persónuupplýsingum til annarra þriðju aðila á grundvelli þeirra heimilda sem fjallað er um í stefnu þessari. Þannig erum við t.a.m. í samstarfi við Straum greiðslumiðlun hf. sem sér um greiðslulausnir fyrir vefsíðuna okkar. Straumur greiðslumiðlun hf. er sjálfstæður ábyrgðaraðili og stefnu og viðskiptaskilmála Straums má finna á vefsíðu þess félags, https://www.straumur.is/stefnur-og-skilmalar.

Þá hefur stjórnandi hóps, sem stendur að fjáröflun, aðgang að stjórnborði þar sem viðkomandi fær upplýsingar um nafn safnara og fjárhæðina sem viðkomandi hefur selt fyrir.

Þá kann að vera að við notum þjónustu þriðja aðila til að miðla til þín skilaboðum með tölvupósti eða öðrum leiðum. Enn fremur notum við þjónustu þriðja aðila við hýsingu persónuupplýsinga í tölvukerfi okkar.

5. Þinn réttur

Þú hefur rétt á því að fá upplýsingar frá okkur um það hvernig persónuupplýsingar þínar eru nýttar af okkur og hvaða upplýsingar við höfum um þig. Þú hefur einnig rétt á því að uppfæra upplýsingar um þig þannig að þær séu réttar og óska eftir leiðréttingum. Þá hefur þú rétt til að afturkalla samþykki þitt og í sumum tilfellum rétt til þess að upplýsingum um þig sé eytt, en það kann þó að hafa í för með sér að félagið geti ekki komið viðskiptunum á. Viljir þú fá nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga um þig eða óska eftir að upplýsingum um þig sé eytt getur þú sent okkur tölvupóst á netfangið alto@alto.is.

Þú hefur einnig alltaf rétt á því að beina kvörtun þinni til Persónuverndar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nú lög nr. 90/2018. Á heimasíðu stofnunarinnar, www.personuvernd.is, getur þú lagt fram kvörtun og leitað frekari fræðslu um réttindi þín.

6. Varðveisla og öryggi

Persónuupplýsingar sem við öflum eru ekki geymdar lengur en félagið telur þörf á í þeim tilgangi sem þeim var safnað. Upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna bókhalds eru geymdar í sjö ár í samræmi við ákvæði laga nr. 145/1994 um bókhald. Öðrum gögnum er eytt þegar aðgangi er lokað. Þess er gætt að aðgangsstýringu sé beitt þannig að einungis þeir hafi aðgang sem þurfa þess starfa sinna vegna.

Við munum varðveita viðskiptasögu þína í samræmi við lög og með hliðsjón af málefnalegum ástæðum hverju sinni.

Stefna þessi var sett og gildir frá 1. október 2026

Útgáfa personuvernd-2026-10-02 · uppfært október 2026.

Aftur á forsíðu