útskriftarferð

Fjáröflun fyrir útskriftarferð

Útskriftarferð kostar sitt, hvort sem það er 10. bekkur eða útskriftarárgangur í framhaldsskóla. Hér er farið yfir hvernig hópurinn getur skipulagt söfnun með alto, hvenær gott er að byrja og hvað nefndin þarf að ákveða.

Þegar hver nemandi safnar fyrir sig

Útskriftarárgangar eru oft stórir og hver nemandi safnar fyrir sinni eigin ferð. Þá skiptir máli að hver og einn sjái hvað hann hefur safnað og fái sinn ágóða. Með alto er það innbyggt: hver nemandi hefur sína síðu og sinn ágóða.

Vörurnar eru heimilisvörur sem fólk notar hvort sem er. Mörgum finnst þægilegra að bjóða fjölskyldunni slíkar vörur en að biðja um beinan styrk.

Tímalína fyrir útskriftarhóp

  1. Nokkrum mánuðum fyrir ferð

    Nefndin ákveður markmið og hvenær söfnun fer fram. Hafið samband við alto tímanlega svo hægt sé að ákveða tímabil og afhendingarstað.

  2. Kynning fyrir hópnum

    Nefndin kynnir söfnunina og dreifir hópkóðanum. Nemendur stofna sína söfnun, og forráðamenn fyrir þá sem eru yngri en 18 ára.

  3. Söfnunartímabilið

    Alla jafna um tvær vikur. Nemendur deila hlekknum sínum og sjá pantanirnar koma inn jafnóðum.

  4. Afhending

    Vörurnar koma flokkaðar á afhendingarstað hópsins. Hver nemandi sækir sínar vörur og afhendir þær kaupendum innan 7 daga.

  5. Ágóðinn greiddur

    Eftir afhendingu tekur við 14 daga biðtími. Að honum loknum, og þegar skilyrði fyrir útgreiðslu eru uppfyllt, fær nemandinn ágóðann greiddan inn á bankareikning.

Það sem nefndin þarf að ákveða

  • Hvort ágóðinn rennur í sameiginlegan ferðasjóð eða gengur upp í ferð hvers og eins. Ágóðinn er greiddur hverjum nemanda, svo þetta þarf að liggja fyrir.
  • Hvenær söfnun fer fram, svo hún rekist ekki á próf eða aðrar safnanir í skólanum.
  • Hver er tengiliður við alto og hver tekur á móti vörunum.
  • Hvort fleiri leiðir verða farnar samhliða, til dæmis viðburðir eða styrkir.

Hversu mikið safnast?

Það fer eftir því hversu margir taka þátt, hversu margir panta og hvaða vörur eru pantaðar. Ágóði af hverri vöru er föst upphæð sem sést fyrir fram, svo hver nemandi getur reiknað sitt eigið markmið út frá fjölda pantana. alto lofar ekki ákveðinni upphæð.

Spurningar frá útskriftarhópum

Hvernig getum við safnað pening fyrir útskriftarferð?

Flestir hópar blanda saman nokkrum leiðum: vörufjáröflun, viðburðum, vinnu og styrkjum. Vörufjáröflun með alto er ein þeirra. Þar safnar hver nemandi fyrir sig og enginn í hópnum þarf að halda utan um pantanir eða greiðslur. Leiðirnar eru bornar saman í fjáröflunarhugmyndum.

Hvenær er gott að hafa samband?

Gott er að hafa samband nokkrum mánuðum áður en söfnun á að fara fram, svo hægt sé að finna tímabil sem hentar hópnum.

Hvað ef nemandi er yngri en 18 ára?

Þá stofnar forráðamaður söfnunina fyrir hönd nemandans og ber ábyrgð á henni, meðal annars á afhendingu og móttöku ágóðans.

Geta foreldrar fylgst með?

Hver söfnun hefur sitt stjórnborð þar sem pantanir og ágóði sjást jafnóðum. Þegar forráðamaður stofnar söfnunina hefur hann sjálfur aðgang að því.

alto fyrir hópinn

Er útskriftarhópurinn að skipuleggja söfnun?

Sendu okkur upplýsingar um hópinn og hvenær ferðin er. Við förum yfir hvort alto henti ykkur og höfum samband.

Viltu frekar hafa samband beint?Benedikt BjörgvinssonFramkvæmdastjóri altobb@alto.is