fyrir bekkinn, útskriftarhópinn og liðið
Fjáröflunarhugmyndir: sex leiðir til að safna fyrir ferðinni
Hver leið hefur sína kosti. Hér sérðu á einni mínútu hvað hver þeirra krefst, og hvernig hópurinn getur safnað án þess að kaupa inn, rukka eða geyma vörur.
Hver er að safna?
- Bekkur eða skóliMargir nemendur og einn tengiliður. Hver nemandi safnar á sinni síðu og vörurnar koma í skólann.Fjáröflun fyrir skóla
- ÚtskriftarferðStór ferð og hver nemandi með sitt markmið. Hver og einn sér hvað hann hefur safnað.Fjáröflun fyrir útskriftarferð
- ÍþróttaliðKeppnisferð, æfingaferð eða mót. Flokkurinn safnar saman og vörurnar koma í íþróttahúsið.Fjáröflun fyrir íþróttafélög
leið 1
Vörufjáröflun, án umstangsins
Fólk pantar heimilisvörur og matvöru sem það notar hvort sem er, og hluti verðsins rennur til þátttakandans. Þetta er leiðin sem alto býður.
Á eigin vegum
- Hópurinn kaupir vörurnar inn fyrir fram
- Einhver geymir lagerinn
- Pantanir á blaði eða í skjali
- Rukkað og fylgst með millifærslum
Með alto
- Engin vörukaup fyrir fram
- Hver og einn með eigin söfnunarsíðu
- Kaupendur panta og greiða á netinu
- Vörurnar koma flokkaðar til hópsins
- Föst upphæð af hverri vöru, sýnileg fyrir fram
Hópurinn kynnir söfnunina og kemur vörunum til kaupenda í lokin.
Hinar fimm leiðirnar
Viðburðir
Bingó, kökubasar, tónleikar eða spilakvöld.
Hentar ef hópurinn vill gera eitthvað saman.
Mikil vinna á stuttum tíma og oft kostnaður við sal eða vinninga. Happdrætti geta verið leyfisskyld.
Vinnuframlag
Launuð verkefni eins og vörutalning, þrif, vinna á mótum eða dósasöfnun.
Hentar ef hópurinn hefur tíma og orku.
Tekjurnar ráðast af verkefnum sem bjóðast og vinnan lendir oft á fáum.
Styrkir frá fyrirtækjum
Fé eða vörur, oft gegn auglýsingu eða þakklæti.
Hentar ef verkefnið er skýrt og tengsl við fyrirtæki eru til staðar.
Svör geta tekið tíma og styrkur rennur yfirleitt til hópsins í heild.
Áheit
Fólk heitir á þátttakendur fyrir afrek, til dæmis hlaup eða sund.
Hentar ef söfnunin tengist áskorun eða góðu málefni.
Árangurinn ræðst af tengslaneti hvers og eins.
Frjáls framlög
Söfnun á netinu eða millifærslur frá ættingjum og vinum.
Hentar ef verkefnið er afmarkað og sagan skýr.
Fólk fær ekkert í staðinn. Fjársöfnun á almannafæri eða í hús getur þurft leyfi sýslumanns.
Stór ferð? Blandið saman
Hópar sem safna fyrir stórri ferð blanda oft saman nokkrum leiðum. Það dreifir álaginu og minnkar áhættuna ef ein leið skilar minna en vonast var til.
Spurningar og svör
Hvað er vörufjáröflun?
Stuðningsfólk kaupir vöru og hluti verðsins rennur til hópsins eða þátttakandans. Klósettpappír, eldhúsrúllur og aðrar heimilisvörur eru algengar fjáröflunarvörur á Íslandi, því fólk notar þær hvort sem er.
Er fjáröflun með klósettpappír enn góð hugmynd?
Klósettpappír er klassísk fjáröflunarvara því öll heimili nota hann. Gallinn við hefðbundna leið er umstangið við að kaupa inn, geyma og rukka. Með alto panta kaupendur á netinu og vörurnar koma til hópsins þegar söfnun lýkur.
Hver er einfaldasta fjáröflunarleiðin?
Það fer eftir hópnum. Frjáls framlög krefjast minnstrar skipulagningar, en fólk fær ekkert í staðinn. Vörufjáröflun á netinu er einföld fyrir þátttakendur, en vörunum þarf að koma til kaupenda í lokin.
alto fyrir hópinn
Viljið þið skoða þetta fyrir hópinn?
Segðu okkur frá hópnum og hvað þið eruð að safna fyrir. Við förum yfir hvort alto henti ykkur og höfum samband.
Viltu frekar hafa samband beint?Benedikt BjörgvinssonFramkvæmdastjóri altobb@alto.is



