top of page

alto

þróunarfélag

Verkefnin

Alto er fasteignafélag með skýra nálgun: við gerum fá verkefni, en gerum þau vel.
Við leggjum áherslu á langtímahugsun, vandaða uppbyggingu og húsnæði sem þjónar raunverulegum þörfum samfélags og atvinnulífs.
Allt hófst þetta með Toppstöðinni við Rafstöðvarveg.
Toppstöðin er meira en hefðbundið atvinnuhúsnæði. Hún er hugmynd um hvernig má endurhugsa rými, blanda saman atvinnustarfsemi, íþróttum og útivist og skapa lifandi stað þar sem fólk vinnur, hreyfir sig og hittist. Verkefnið byggir á sterkum tengslum við umhverfið, sögu svæðisins og þá starfsemi sem þar á sér stað.
Þótt verkefnin séu ekki mörg, þá er hvert þeirra unnið af metnaði og með skýra sýn um framtíðarnotkun, gæði og sjálfbærni. Við fjárfestum ekki til skamms tíma heldur byggjum upp eignir sem standast tímans tönn.
Alto horfir fram á veginn með yfirvegun.
Við veljum verkefni af kostgæfni og trúum því að gæði, einfaldleiki og ábyrgð séu lykillinn að góðri fasteignaþróun.

bottom of page